Nágrenni Fljótstungu

Fagur fjallahringur - Eiríksjökull, Strútur, Langjökull, Ok, Skarðsheiði og Hafnarfjall Margar áhugaverðar gönguleiðir.
Náttúruundur í næsta nágrenni eru Hraunfossar og Barnafoss.
Arnarvatnsheiði með öllum sínum veiðivötnum er ekki fjarri.
Hellaferðir eru vinsælar og eru nokkrir afar tilkomumiklir hellar í Hallmundarhrauni. Þeirra þekktastur er Surtshellir og í landi Fljótstungu er Víðgelmir sem er einn rúmmesti hraunhellir í heimi. Merkilegir sögustaðir eru í nágrenninu s.s.Gilsbakki og Reykholt.


Nokkrar vegalengdir frá Fljótstungu:

Húsafell: Sundlaug, golfvöllur, verslun 10 km
Bjarnastaðir: Handverkshús 10km.
Reykholt: Heimkynni Snorra Sturlusonar 25km.
Borgarnes: 63km.

 

 

   

 

 

Fljótstunga
Hvítársíðu
320 Reykholt

fljotstunga@fljotstunga.is