Víðgelmir

Í Fljótstungulandi er hraunhellirinn Víðgelmir sem er einn rúmmálsmesti hraunhellir í heimi, 148.000 rúmmetrar og 1585 m langur. Í hellinum eru fallegar ísmyndanir og er innar dregur einnig dropasteinsmyndanir.


Hellirinn er læstur en hægt er að skoða hann með fylgd frá Fljótstungu.

Stutt ferð tekur um 1 klst
Lágmarksfjöldi 4
Hámarksfjöldi: 15
Aldurstakmark: 8 ár

Löng ferð tekur 3-4 klst.
Lágmarksfjöldi: 3
Hámarksfjöldi: 8
Aldurstakmark: 13 ár

Hellirinn er erfiður yfirferðar á köflum. Mælt er með að þátttakendur séu hlýlega klæddir, í góðum, vatnsheldum skóm og með hanska eða vettlinga. Hjálmar og vasaljós eru innifalin í leiðsögninni.

Athugið að Víðgelmir er friðlýstur hellir og þar má enginn fara inn án leyfis og leiðsagnar

 

 

 

Fljótstunga
Hvítársíðu
320 Reykholt

fljotstunga@fljotstunga.is