Gistiaðstaða

Í Fljótstungu hefur verið rekin ferðaþjónusta í 32 ár. 
Boðið er upp á fjölbreytta gistiaðstöðu sem ætti að henta öllum ferðamönnum.

Boðið er upp á: 
* Morgunverðarhlaðborð 
* Aðrar máltíðir eftir samkomulagi 
* Setustofu og bókaherbergi 
* Hellaferðir í Víðgelmi

Herbergi inni á bænum

Inni í bænum er boðið upp á uppbúin rúm í þrem tveggja manna herbergjum.

Hóll, Hamar og Hlíð

Fyrir neðan bæinn eru f.v. Hlíð 2-3ja manna, Hóll 4ra manna og Hamar 4ra manna hús með eldunaraðstöðu, salerni og kojum fyrir svefnpoka- gistingu. Í minnsta húsinu er sturta. 

Heygarður

Fyrir ofan bæinn er Heygarður, 20m2 sumarbústaður með svefnpokaplássi fyrir 4, baðherbergi og eldunaraðstöðu.

Hraun

Í hrauninu neðan við bæinn er sumarbústaður sem kallaður er Hraun. í honum eru tvö svefnherbergi, stofa með svefnsófa, baðherbergi og eldhús.

Höll

Borðstofa/setustofa fyrir allt að 24 manna hópa. Eldunaraðstaða. Snyrting fyrir tjaldgesti.

Tjaldstæði

Aðstaða er góð fyrir tjaldgesti. Á svæðinu eru vatnssalerni skolvaskur og stórt kolagrill. Einnig geta tjaldgestir leigt aðstöðuna í Höllinni sem hentar vel fyrir hópa.

Fljótstunga

Herbergi 1

Herbergi 2

Hlíð, Hóll og Hamar

Hlíð

Hlíð

Hlíð

Hóll

Hóll

Hóll

Hamar

Hamar

Hamar

Heygarður


Heygarður

Heygarður

Heygarður

Hákot

Hákot

Hákot

Hraun

Hraun

Hraun

Hraun

Höllin

Höllin

Höllin

 

 

Fljótstunga
Hvítársíðu
320 Reykholt

fljotstunga@fljotstunga.is