Hraunhellirinn Víðgelmir
Hallmundarhraun, víðfeðmasta hraun Borgarfjarðar, rann úr norðvesturhlíðum Langjökuls í kringum árið 900. Hallmundarhraun nær yfir 242 km2 og hefur að geyma stærstu og lengstu hella á Íslandi. Hluti hraunsins er í landi Fljótstungu og þar á meðal hellirinn Víðgelmir. Hann er stærstur allra hella á Íslandi og einn rúmmálsmesti hraunhellir í heimi eða 148.000 km3 með 15.8 m lofthæð þar sem hann er hæstur og 16.5 m breiður á köflum. Í hellinum eru magnaðar ísmyndanir, eins og best sést á myndinni af Ísálfaborg hér hægra megin, og þegar innar dregur einnig þúsundir fallegra dropsteina og hraunstráa. Björn Hróarsson, hellafræðingur, hefur skrifað í ritum sínum um hraunhella á Íslandi að Víðgelmir sé einn af merkilegustu hraunhellum jarðarinnar.
Hraunhellirinn Víðgelmir var friðaður árið 1991 þegar Hellarannsóknafélag Íslands setti þar upp læsanlegt járnhlið. Þess vegna er eingöngu hægt að skoða hellinn með leiðsögn frá Fljótstungu.
Við bjóðum upp á tvær ferðir:
Stutt ferð - 1 klst. 2.000 ISK á mann. Aldurstakmark: 8 ár. Lágmarksfjöldi: 4.
Daglegar ferðir:
10:00 / 12:00 / 15:00 / 17:00
Löng ferð - 3 klst. 5.000 ISK á mann. Aldurstakmark: 13 ár. Lágmarksfjöldi: 3.
Daglegar ferðir:
10:00
Nauðsynlegt er að hringja á undan sér og panta þar sem stundum fyllist í ferðirnar.
Víðgelmir er einnig á Facebook! Endilega 'líkið' vel við hellinn okkar!
